Þetta er nú meira hrokinn hjá Ólínu

Ef kreppan er nú búin eins og þú segir ertu þá ekki til í að skila ellilífeyrisþegum og örirkjum til baka skerðingunum sem þú stóðst að.Eða er skerðingin bara búin hjá þingmönnum þeir eru búnnir að fá sína skerðingu til baka.Ég veit ekki í hvaða veröld þú ert en það er ekki veröld hins venjulega íslendings

Grálind er og leið í lund
líka full hún er af hroka
Ég held hún ætti nú um stund
eigin hlandfor reyn að moka


mbl.is „Kreppan er nefnilega búin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á þessum fundi

Á þessum fundi kom ekkert nýtt fram hjá þeirri gömlu hún er reyndar hætt að tala um skjaldborg heimilinna minnist sjaldnar á norræna velferðarstjórn og úlfúðin eikst í kringum hana í hennar eigin flokk

Jóka gráa gaggar hátt
gjarnan sína vill sinn mátt
Dansar í kringum hana dátt
í djöfulmóði lið ósátt


mbl.is Krafan um endurnýjun lifir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla konan

Aumingja gamla konan hefð átt að eiga þetta með sjálfri sér en ekki gera sig að hálfgerðu viðundri frammi fyrir þjóðinni
mbl.is Vigdís styður samninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru mótmælendur og ófriðarseggir það sama

Nokkrir ófriðarseggir komu saman fyrir framan heimili Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur segir á vísir.is þessir ófriðarseggir kallast ekki mótmælendur hjá vísir.is þegar samfylkingin á í hlut þetta segir mér  hverjir hafa kostað hana á þing og eru eigendur hennar. Það er mikll munur á fyrisögnum hjá mbl.is en þar er talað um mótmælendur 
mbl.is Mótmælt við heimili þingmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það kom glöggt fram í þættinum Sprengisandi á bylgjunni þar sem rætt við Ólínu Þorvarðar, Sigmund Davíð og Tryggva Þór Herbertsson að Samfylkingin er búin að koma sér upp sinni Gróu á leiti í Norðvestur kjördæmi gengur hún undir nafninu Ólína Þorvarðar

Það kom glöggt fram í þættinum Sprengisandi á bylgjunni þar sem rætt við Ólínu Þorvarðar, Sigmund Davíð og Tryggva Þór Herbertsson að Samfylkingin er búin að koma sér upp sinni Gróu á leiti í Norðvestur kjördæmi gengur hún undir nafni Ólína Þorvarðar Í þættinum réðist hún með dylgjum og lygaþvælu að mannorði Sigmundar Davíðs og lét í það skína að sú 20%  leið sem farmsóknarflokkurinn vill að sé farinn sé meðal annars gerð í þeim tilgangi að hygla  Kögun fyrtækis sem hún hélt að væri í eigu föðurs Sigmundar Davíðs. Mér virðist  sannleikurinn  skipta  Gróu Samfylkingunnar í Norðvestur kjördæmi litlu máli. Kannski geta frambjóðendur Samfylkingunnar í Norðvestur kjördæmi og kjósendur þeirra vart vatni haldið yfir framgöngu hennar í þættinum og telji Gróusögurnar séu heppilegri og komi þeim betur en  málefnaleg umræða um vandamál heimilinna. Hver veit?


Steingrímur J hann gjammar hátt

Í sjónvarpinu í kvöld bæði hjá RÚV og Stöð 2 var Steingrímur J kallaður til eins og hann væri einhver sérfræðingur um málefni Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í Evrópumálum. Eins og við mátti búast kom lítið eða ekkert af viti í þessum viðtölunum frá honum enda er skoðanir hans hann oftast aftur úr grárri forneskju og hugsaðar í svarthvítu.

Steingrímur hann gjammar hátt

heldur fátt af viti segir

holur hljómur í  orða gátt

heyrist jafnvel er hann þegir

  Um aðdáun fjölmiðla

Fjölmiðlarnir flatir til hans skríða

Fyrirheit um ekkert hann þeim gefur

Á Skallagrím þeir horfa spenntir  bíða

að skíti sá er ekkert rassgat hefur

 


Breitir för Ingibjörg Sólrun stríðinu í Aganistan?

Dettur einhverjum sú fyrra í hug að Ingibjörg Sólrún  breyti gangi mála í Afganistan með för sinni þangað. Ég á bágt með að trúa því og svo er ábyggilega með marga aðra.Ég held að þeim fjármunum sem er varið í þessa sýndar og auglýsingaferð hennar sé betur varið í margt annað. Maður skildi ætla að utanríkisráðherra ætti  vera það sæmilega ljóst hvað þarna er að gerast. Er ekki  friðargæslusveit þarna á vegum íslenska ríkissins? Veit hún kannski ekki hvað friðargæslusveitin er að gera þarna ef svo er hlítur einhver þokkalega upplýstur meðalagreindur maður geta frætt hana um þau mál. Kannski gætu jafnvel bullukollar eins og mér finnst þeir vera Mörður Árnason og hin tíndi varaformaður Samfylkingarinnar heitir hann ekki Ágúst upplýst hana um gang mála í Afganistan. Væri ekki þessum milljónum sem í þessa auglýsingaferð fara betur varið í annað til dæmis að minka þann niðurskurð sem á að verða á löggæslu á suðurnesum,en löggæslan þar hefur  unnið gott starf í sambandi við að uppræta fíkniefni sem verið er að reyna að kom neð ólöglegum hætti inn í landið


Verkalýðsforustan á nokkuð hrós skilið

Einar Kristinn Guðfinnsson segir á bloggi sínu meðal annars að nýjir kjarasamningar séu mikið afrek. Einnig  segir hann “Það þurfti kjark og þroska til þess að gera slíkan samning. Þeir sem stóðu fyrir samningunum nú eiga því hrós skilið,, Svo mörg voru þau orð. Ég get ekki verið sammála honum um að það sýni afrek, kjark eða einhvern sérstakan þroska að menn vinni vinnuna sína Ekki veit ég á hvaða þroskastigi Einar er með því að halda þessu fram  en  í mínum huga  skipar það ekki háan sess. Ég mun hvorki telja það kjark eða afrek hjá honum að stunda vinnuna. Ég get tekið undir með Einari það eigi að hrósa mönnum fyrir ef vel tekst til í störfum þeirra. Vegna þess verður því miður einhver bið á hrósi mínu til handa Einar. En verkalýðsforustan á  nokkuð hrós skilið við gerð þessa samninga. Aftur á móti er að koma ríkisstjórnarinnar að samningunum frekar slök miðað við það sem verklýðsforustan setti fram í upphafi  hefði kannski verið hægt að ná meiri árangri.


Á Samfylkingin að kasta björgunarhring til Íhaldsins í borginni

Stefán Jón Hafstein kom með þá hugmynd í Silfri Egills að Samfylkingin og Vinstri græn bjargi Sjöllunum  frá því hruni sem blasir við þeim í borgini með því að fara með þeim í meirihlutasamstarf. Það er greinilegt að sumir í samfylkingunni eru tilbúnir að skoða það að hlaupa undan merkjum Tjarnarkvartettsins svo kallaða þar sem allir af forystumönnum í þeim kvartett lýstu yfir að þeir myndu ekki mynda meirihluta með sjöllunum. Til þess að vera ekki einir á báti í björgunarstarfinu vilja þeir draga Vinstri græn með sér út í foræðið.  Vissulega læðist að manni sá grunur að þessar tillögur Stefáns séu ekki hans og ekki að skapi  borgarstjórnarliðs Samfylkingarinnar í það minnsta ef eitthvað er að marka það sem þau hafa áður sagt.  Heldur séu þetta skilaboð Geirs í gegnum Ingibjörgu Sólrúnu. Hvað hún fengi í staðinn er ekki gott að segja. Kannski stöðvun álvers í Helguvík.  Er sú kenning  nokkuð verri heldur enn margar aðrar kenningar      

Stefán Jón Hafstein biðlar til íhaldsins í borginni í Silfri Egils í dag

 Í Silfri Egils í dag sagði Stefán Jón Hafstein Reykjavik stjórnlausa og setti fram hugmynd um að Samfylkingar,Sjálfstæðisflokks  og Vinstri grænna færu með stjórn borgarinnar. Björgvin Guðmundsson bloggar  um þetta í dag og telur þetta  athyglisverð hugmynd hjá Stefáni og segir samhvæmt henni mundi það sem hann kallar örflokka ekki taka þátt í meirihlutasamstarfi borgarinnar Skrítin kenning hjá honum að telja ekki Vinstri Græna með sinn eina fulltrúa til örflokkanna heldur bara hina sem eru líka með einn fulltrúa .Reyndar gengur þessi kenning Stefáns Jóns ekki upp ef  að þau sem standa að Tjarnarkvartettinum standa við stóru orðin en þau hafa sagt að engin þeirra muni fara í stjórn með íhaldinu.  En kannski telja kratarnir eins og oft áður að orð og gerðir þurfi ekki að fara saman.

,


Næsta síða »

Um bloggið

Eggert Karlsson

Höfundur

Eggert Karlsson
Eggert Karlsson
Ég er orðinn sjötugur og er því einn af þessum ellibelgjum, sem á að hafa farið hvað verst útur hinu opinbera kerfi sem að okkur gamlingunum snýr.Ég er framsóknarmaður vinstra meginn við miðjuna og stoltur af  að vera í flokki sem hefur átt mestan þátt í að byggja upp velmegun í landinu og íslenkst velferðarkerifi í árana rás til farsældar fyrir land og lýð.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...dsc00077-1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband