6.1.2008 | 13:58
Lélegt og leiðinlegt ármótaskaup skánaði ekki við endursýningu
30.12.2007 | 15:57
Var að hlusta á bullið í Össri áðan á Silfur Egils
Var að hlusta á Silfur Egils áðan blöskraði alveg bullið í Össri sem eins og vanalega svara hann engu um sinn flokk heldur reynir að gera lítið úr öðrum. Annað hvort telur hann sig vera að upp hefja Samfylkinguna með þessu maklausa marklausa þvaðri eða hann treystir sér ekki til að ræða um alla þá sundrung sem er á ferðinni í hans eigin flokk og ríkisstjórnarsamstarfinu.
Kannski er skýringin bara sú að hann sé orðinn hálf ruglaður og svefnlaus af öllu næturblogginu og segi því fátt af viti. Reyndar minnir hann mig oft í útliti á dverginn í myndinni Síðasti bærinn í dalnum nema hann er aðeins líkamsstærri svo virðist dvergurinn líka hafa meira en kjaftavit. Datt þessi limra í hug um Össur meðan eg var að skrifa þetta
Vakir flestar nætur við
Vitleysu á bloggið færa
Sofnar svo á hægri hlið
Að sönnum góðum kratasið
Alsæll er í íhaldsfaðminum kæra
25.12.2007 | 21:52
. Fór sjálfsögðu að lesa Guðna hann er eini trúverðugi foringinn í dag
Vorum í matarboði í gærkvöld og var það allveg indælt. Fór sjálfsögðu að lesa Guðna þegar ég kom heim en konan gaf mér hann í jólagjöf hún veit eins og er að hann er eini sanni foringinn í stjórnmálunum í dag og nær að halda okkar litla en stórhuga flokki saman svo við erum eins og eitt og stöndum þannig fast á því sem er þjóðinni fyrir bestu.
Hjá honum er ekkert kerlingavæl eins og hjá Imbu greyinu sem hefur enga stjórn á sínu liði og er aðalega í að gleyma því ekki að vera sætasta stelpan á ballinu til að þóknast undir Geir sem stjórnar í skugga hins mikla Davíðs (en þessa Davíðs er ekki getið í Davíðsálmum þótt sjallarnir haldi það) og ekki megum við gleyma foringja Frjálslyndra sem reyndar virðist vera kraftaverkakarl úr því hann gat komið hinu munaðarlausa flokkaflakkar Kristni H hægra megin við íhaldið. Þá er nú að geta garmsins Steingríms J sem virðist þrífast best á að halda langar og oftast innihalds litlar ræður aðalega til að láta ljós sitt skína þetta ljós hefði verið kölluð grútartýra í árdag íslenskrar pólitíkusa þegar málefnin voru látin ráða en ekki orðljótar ræður um andstæðingana. Jæja þið sjáið hvað þessar fyrstu 50 blaðsíðna lesning í bókinni hans Guðna kemur manni til að hugsa pólutíkst rökrétt. Ráðlegg eg öllum að verða sér úti um eintak af henni sem fyrst svo þeir komi auga á ljósið í hinni myrku íslensku pólitík.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Eggert Karlsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar