11.2.2008 | 16:35
Voða bágt á veslings Villi
Veslings Villi ósköp var að horfa upp og hlusta á karlhróið á blaðamanna fundinum áðan í Valhöll. Ég held að fáir stjórnmálamenn hafi sýnt aðra eins lágkúru þegar hann heldur því fram að hann hafa axlað ábyrgð með því að missa borgarstjórastólinn í hendurnar á Degi B.
Það vita allir sem vilja að hann hefði setið sem fastast ef Björn Ingi hefði ekki slitið samstarfinu þegar ekki var stætt á að vinna lengur með sundruðum borgastjórnarflokki sjallana. Ábyrgð Villa var engin hann hrökklaðist frá völdum rúinn trausti félaga sinna í flokknum, en ekki af eigin hvötum. Það var nú meiri ábyrgðin það. Ekki sýndu svo kallaðir samherjar Villa í borgarstjórnarflokknum mikla samstöðu með honum eftir fundinn heldur flýttu sér í burtu einn og einn að endingu stóð karlskinnið einn eftir þegar Gísli Marteinn og Hanna Birna höfðu læðst eins og ræsisrottur útum kjallara dyr Valhallar. Þvílík reisn yfir samherjum Villa eða hitt þó heldur. Ég bý úti á landi Reykjavík er höfuðborg mín eins og annara landsmanna því snertir það okkur mikið kvað þar er að gerast. Að horfa upp á það rugl sem þarna er í gangi er ekki verjandi. Ef Villi telur það að axla ábyrgð að hafa komið þessu núverandi meirihlutasamstarfi á er eitthvað alvarlegt að hjá honum
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Eggert Karlsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.