18.2.2008 | 00:07
Á Samfylkingin að kasta björgunarhring til Íhaldsins í borginni
Stefán Jón Hafstein kom með þá hugmynd í Silfri Egills að Samfylkingin og Vinstri græn bjargi Sjöllunum frá því hruni sem blasir við þeim í borgini með því að fara með þeim í meirihlutasamstarf. Það er greinilegt að sumir í samfylkingunni eru tilbúnir að skoða það að hlaupa undan merkjum Tjarnarkvartettsins svo kallaða þar sem allir af forystumönnum í þeim kvartett lýstu yfir að þeir myndu ekki mynda meirihluta með sjöllunum. Til þess að vera ekki einir á báti í björgunarstarfinu vilja þeir draga Vinstri græn með sér út í foræðið. Vissulega læðist að manni sá grunur að þessar tillögur Stefáns séu ekki hans og ekki að skapi borgarstjórnarliðs Samfylkingarinnar í það minnsta ef eitthvað er að marka það sem þau hafa áður sagt. Heldur séu þetta skilaboð Geirs í gegnum Ingibjörgu Sólrúnu. Hvað hún fengi í staðinn er ekki gott að segja. Kannski stöðvun álvers í Helguvík. Er sú kenning nokkuð verri heldur enn margar aðrar kenningar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Eggert Karlsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.